Saga NKG
Yfirlit
Nýsköpunarkeppni grunnskólanna (NKG) var haldin í fyrsta sinn árið 1992. Paul Jóhannsson fluttist búferlum heim frá Svíþjóð og stofnaði NKG. Heildarfjöldi innsendra hugmynda frá upphafi eru nú komnar yfir 39 þúsund umsóknir (2017). Keppnin hefur verið haldin árlega frá upphafi. NKG er að fyrirmynd sænsku uppfinningakeppninnar www.finnupp.se. Aðferðafræði og uppbygging hefur verið staðfærð þar sem við á.
Frá árinu 2006 hefur NKG verið í umsjón mennta- og menningarmálaráðuneytisins og rekstur og framkvæmd á vegum NKG verkefnalausna. Fyrstu fimmtán árin var NKG að mestu leyti starfrækt í sjálfboðavinnu einstaklinga með ríka hugsjón og ástríðu fyrir eflingu nýsköpunarmenntar á Íslandi.
Frá miðjum febrúar 2016 hefur rekstur og framkvæmd NKG verið á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
Nánar um NKG
Saga Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda hefst árið 1987 þegar Lennart Nilsson (LN) frá Svenska Uppfinnarföreningen (SUF) heldur erindi um uppfinningar, fyrir tilstuðlan Paul Jóhannssonar, á vegum Verkfræðingafélags Íslands (VFÍ). Í framhaldi af því var í fyrsta sinn rætt um að halda Finnupp keppnina hér á landi en hún hefur verið haldin í Svíþjóð frá árinu 1979.
Árið 1988 var fyrsti kynningarfundurinn haldinn í Tækniskóla Íslands (TÍ). Árið 1989 voru fyrstu kynningarfundirnir fyrir grunnskóla haldnir í Tækniskóla Íslands (TÍ). Þar mættu fulltrúar frá 14 grunnskólum, þar á meðal Tómas Einarsson frá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur (FMR). Tómas setti Guðrúnu Þórsdóttir inn í málið. Í kjölfar þess var kynning á nýsköpun í Námsgagnastofnun. Jón Erlendsson, frá Háskóla Íslands, og Paul Jóhannsson fluttu þar erindi og voru Gísli Þorsteinsson og Guðrún Þórsdóttir viðstödd meðal annarra. Fyrir tilstuðlan þessara aðila komst NKG á kortið.
Árið 1991 hefjast umræður um að fá Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur, ÍTR, með í starfið. Þá kemur Bragi Einarsson inn í starfshópinn. Fyrsta keppnin fer af stað og ÍTR verður samstarfsaðili. Grunnskóli Akraness tekur þátt í keppninni, fyrstur skóla á landsbyggðinni.
Fyrsta námskeiðið í nýsköpun var haldið í Foldaskóla en Gísli var smíðakennari þar. Bragi, Gísli og Paul héldu fleiri námskeið fyrstu árin. Paul Jóhannsson hafði það hlutverk að fara í aðra skóla til þess að kynna keppnina og aðferðafræðina. Sænska keppnin veitti aðgang að öllum gögnum keppninnar sem urðu undirstaðan að gögnum NKG. Þeirra á meðal voru kennslugögn Gísla Þorsteinssonar og Rósu Gunnarsdóttur, en hún var kennari í Foldaskóla á þessum tíma og varð hluti af starfshópnum snemma ásamt því að verða fyrst allra til að ljúka doktorsnámi í nýsköpunarmennt.
1992 Fyrsta verðlaunaafhending NKG er haldin árið 1992. Litla uppfinningabókin hans Braga verður til. Bragi og Guðrún sjá um að koma henni á framfæri í skólum landsins við mikinn fögnuð kennara og nemenda.
1993 Sumarskóli í nýsköpun á vegum ÍTR er settur á laggirnar. Þróunarhópur NKG hefur göngu sína. Vífilfell setur af stað keppni sem kennir börnum að nýta gamla hluti á nýjan hátt. Páll Kr. Pálsson var hvatamaður þeirrar keppni.
1994 Nemendur TÍ koma inn í þróunarstarfið með verkefnavinnu. Samtök iðnaðarins koma inn í starfið með það að markmiði að vinna úr hugmyndum og gera eitthvað úr þeim. Verkefnið Ruslafötukarfan var fyrsta verkefnið en Barnasmiðjan tók að sér smíðina. Foldaskóli verður móðurskóli í nýsköpun. Félag ungra hugvitsmanna verður til þann 20. apríl.
1995 Guðrún Þórsdóttir kynnir vísi að námsefni sínu, Frumkvæði og markmið í Selja- og Langholtsskóla.
Ýmsir samstarfsaðilar komu að starfinu þessi fyrstu ár og voru þar með áhrifavaldar í sögu keppninnar og framgangi hennar. Hluti þeirra hefur sent keflið áfram. Þar má meðal annars nefna Kennaraháskóla Íslands (KHÍ), ÍTR, Fræðsluráð Reykjavíkur, Menningarmiðstöðina í Gerðubergi, Landssamband hugvitsmanna, Sjálandsskóla, Foldaskóla og Hofsstaðaskóla.
Helstu styrktaraðilar voru Marel og Iðnaðarráðuneytið, sem enn skipa stóran sess í verkefninu.
1997 Fyrsta námsefni Gísla og Rósu kemur út, Frumkvæði og sköpun.
2000 Heimasíða keppninnar opnuð: www.inet.is. Fyrsta vinnusmiðjan haldin. Fyrsta námskeiðið í frumgerðasmíði haldið í Hjallaskóla. 13 börn úr 10 skólum tóku þátt.
2006 Mennta- og menningarmálaráðuneytið tekur við umsjón NKG fyrir tilstuðlan Rósu Gunnarsdóttur og Paul Jóhannssonar.
2007 NKG verkefnalausnir taka við rekstri og framkvæmd NKG. Anna Þóra Ísfold er framkvæmdastjóri og Ólafur Sveinn Jóhannesson viðburðastjóri.
2008 Ný heimasíða kynnt: www.nkg.is. Formlegt samstarf við Háskólann í Reykjavík og Háskóla Íslands hefst þar sem vinnuframlag í verkferlum keppninnar er afmarkað við húsakost og framlag. Ferðastyrkur iðnaðarráðuneytisins er settur af stað til að jafna aðgengi þátttakenda á landsbyggðinni að viðburðum NKG.
2008 Nýtt merki („lógó“) tekið í gagnið. Hönnuður er Pálmi Einarsson iðnhönnuður og eigandi Geislar hönnunarhús.
2009 Pálmi Einarsson hannaði og smíðaði verðlaunagrip NKG í samráði við framkvæmdastjóra NKG. Gripurinn tekur mið af nýju merki („lógói“) NKG sem táknar óbeislaða sköpunargáfu sem kemur frá ljósaperunni um leið og blýanturinn vísar upp í átt að þeim óendanlegu möguleikum sem blýantur og blað gefa kost á. Gripurinn er einnig hagnýtur og getur nýst sem statíf á skrifborð fyrir blöð eða sem kertastjaki fyrir sprittkerti þar sem loginn lýsir upp merki NKG.
2010 Útgáfa á nýju kennsluefni í nýsköpunarmennt í samráði við framkvæmdastjóra NKG, Þróunarsjóð námsgagna hjá ráðuneytinu, Námsgagnastofnun, þýðanda og staðfærsluteymi. Staðfærsluteymi bókarinnar var skipað Gísli Þorsteinssyni, Svanborgu R. Jónsdóttur og Önnu Þóru Ísfold, framkvæmdastjóra NKG. Útkoman var handbók í nýsköpunarmennt í boði Finnupp í Svíþjóð, staðfærð að Íslandi. Nýtt kennslumyndband, samofið bókinni, fór í framleiðslu. Junior Chambers (JCI) á Íslandi hófu samstarf við NKG og undirbjuggu þátttakendur í vinnusmiðju undir framsögu á verðlaunaafhendingu.
2011 Þróunarnefnd NKG sendir erindi til mennta- og menningarmálaráðuneytisins um breytingar á markhópi keppninnar.
2012 Snemma árs er formlega samþykkt að keppnin skuli miða við nemendur í 5., 6. og 7. bekk grunnskóla. Undanþágur fyrir barnfáa grunnskóla og samkennslu eiga þó við.
2012 Farandbikar smærri skóla settur á laggirnar. Farandbikarinn hlýtur sá skóli sem sendir hlutfallslega inn flestar hugmyndir miðað við höfðatölu nemenda í 5., 6. og 7. bekk.
2013 Hvatningarverðlaun NKG, VILJI, verða til með stuðningi frá Samtökum iðnaðrins, Samtökum atvinnulífsins og mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Hugmyndasmiður er Anna Þóra Ísfold, framkvæmdastjóri NKG.
Á hverju ári hlýtur kennari eða teymi nafnbótina Nýsköpunarkennari/-ar grunnskólanna árið 20xx ásamt verðlaunum að fjárhæð 250.000 kr.
Tilgangur Vilja
- Hvetja kennara til dáða í nýsköpunarkennslu með viðurkenningu á framlagi þeirra.
- Draga fram og deila aðferðum og hugmyndum sem efla sköpunargáfu nemenda í ferlinu frá hugmynd til framkvæmdar og hvetja til þátttöku í NKG.
- Auka gæði nýsköpunarkennslu.
- Efla vitund um nýsköpunarmennt í grunnskólum landsins.
15. febrúar 2016 NKG verkefnalausnir á vegum Önnu Þóru Ísfold og fjölskyldu kveður sátt eftir níu ára samfelldan rekstur keppninnar. Samkvæmt tölfræðinni bárust á því tímabili 21.000 umsóknir frá 30.000 börnum og unglingum um allt land. Yfir 400 börn og unglingar komu í vinnusmiðju á þessu tímabili. Alls 3000 gestir fögnuðu með okkur í lokahófum keppninnar. Á þessum árum var lagður grunnur að sterku baklandi til framtíðar. Bakhjarlar keppninnar eru Háskólinn í Reykjavík, Háskóli Íslands, Samtök iðnaðarins, IKEA og ELKO. Arionbanki, aðalbakhjarl keppninnar, býður síðan upp á skemmtilega viðbót sem Anna Þóra lagði grunninn að. Þá fara nemendur í gegnum viðskiptamódel, kynnast nútímafrumkvöðlum og fá fræðslu í fjármálum.
Frá 2010 hafa viðburðir keppninnar verið sérlega vel heppnaðir í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, þar sem mannafli frá HÍ og HR leiða saman hesta sína. Eins hefur JCI á Íslandi verið með framsögukennslu og Einkaleyfastofa séð um kynningu á vörumerkja- og einkaleyfisvernd. Hefð hefur skapast fyrir því að verkfræðideildir HÍ og HR komi í kaffitíma og kynni skemmtileg verkefni til að auka þekkingu og áhuga þátttakenda í NKG á tækni- og verkfræðinámi.
2016 Nýsköpunarmiðstöð Íslands tekur við keppninni.