
Yfir 1200 hugmyndir, frá 38 skólum víðs vegar af landinu, bárust að þessu sinni. Dómnefnd valdi 26 hugmyndir, sem 40 nemendur standa að baki, í vinnusmiðjuna, þ.e. úrslitakeppni NKG 2018, sem fór fram í Háskólanum í Reykjavík, dagana 24. og 25. maí.
Aðalvinningshafar NKG 2018 eru eftirfarandi
Fyrsta sæti
Guðjón Guðmundsson og Sölvi Páll Guðmundsson í Rimaskóla, með hugmynd sína flugvéladekkjaskeið, en það er vindskeið sem sett er á flugvéladekk, svo þau fara að snúast fyrir lendingu. Viðurkenninguna fá þeir fyrir nýsköpun, raunsæi og útfærslu hugmyndar ásamt dugnaði og eljusemi í vinnustofu. Verðlaun: Acer Swift 3 SF314 14” fartölva að verðmæti 120 þús, í boði ELKO
Annað sæti
Jóakim Uni Arnaldsson í Vesturbæjarskóla, með hugmynd sína Sturtuhandklæðaskápur, en það er lítill skápur til að geyma handklæði, síma o.fl. í sturtuklefunum sjálfum. Viðurkenninguna fær hann fyrir nýsköpun, raunsæi og útfærslu hugmyndar ásamt dugnaði og eljusemi í vinnustofu. Verðlaun: Samsung A8 farsími að verðmæti 70.000 kr. í boði ELKO
Þriðja sæti
Salka Nóa Ármannsdóttir í Vesturbæjarskóla, með hugmynd sína Hjálmalás, en það Hjólreiðahjálmur sem hægt er að nota til að læsa reiðhjólinu. Viðurkenninguna fær hún fyrir nýsköpun, raunsæi og útfærslu hugmyndar ásamt dugnaði og eljusemi í vinnustofu. Verðlaun: Samsung J5 farsími að verðmæti 35.000 kr. í boði ELKO
Sigurvegarar í vinningsflokkum NKG eru eftirfarandi
Fjármálabikar Arion banka
Saga Líf Ágústdóttir og Ásdís Ósk Brynjarsdóttir í Grunnskólanum á Ísafirði sem hljóta „viðurkenningu fyrir bestu fjármálalausnina“ með hugmynd sína Vasapeningar. Verðlaun: Samsung J5 farsími í boði ELKO
Tæknibikar Pauls Jóhannssonar
Trausti Helgi Atlason og Trausti Ingólfsson í Varmahlíðarskóla í Skagafirði hljóta viðurkenningu fyrir framúrskarandi tæknilega útfærslu með hugmynd sína Rúlluendastimpill. Verðlaun: Samsung J5 farsími að verðmæti 35.000 kr. í boði ELKO
Samfélagsbikar NKG
Sunneva Dís Freysdóttir og Lilja Petrea Líndal í Brekkubæjarskóla hljóta viðurkenningu fyrir framúrskarandi samfélagslega nýsköpun með hugmynd sína Lestrarhjálp. Verðlaun: Samsung J5 farsími að verðmæti 35.000 kr. í boði ELKO
Forritunarbikar NKG
Ylfa Sól Þorsteinsdóttir í Foldaskóla, hlýtur viðurkenningu fyrir framúrskarandi nýsköpun þar sem forritunar er þörf með hugmynd sína Fjölskyldutími. Verðlaun: Samsung J5 farsími að verðmæti 35.000 kr. í boði ELKO
Hönnunarbikar NKG
Katrín Angela Jónsdóttir í Laugalækjarskóla hlýtur viðurkenningu fyrir framúrskarandi hönnun með hugmynd sína Kúlukoddar. Verðlaun: Samsung J5 farsími að verðmæti 35.000 kr. í boði ELKO
Örforritun Kóðans
Vignir Gauti Guðjónsson og Björn Darri Ásmundsson í Brekkubæjarskóla, sem hljóta viðurkenningu fyrir framúrskarandi tæknilega nýsköpun þar sem forritunar er þörf, með hugmynd sína Svefnvaki
Umhverfisverðlaun Einkaleyfisstofu
Freyja Gísladóttir og Telma Rut Þorsteinsdóttir í Grunnskóla Reyðarfjarðar, sem hljóta viðurkenningu fyrir framúrskarandi nýsköpun á sviði umhverfismála með hugmynd sína Plastleysari
Ræðubikar JCI
Katrín Angela Jónsdóttir í Laugalækjarskóla, hlýtur viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur á ræðunámskeiði JCI.
Eftirfarandi fá viðurkenningarskjal fyrir að komast í úrslit Nýsköpunarkeppninnar ásamt gjafabréfi í FAB LAB: verðmæti allt að 50.000 kr.
Um er að ræða tveggja daga ferð í Fab Lab smiðju Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands í Vestmannaeyjum.Innifalið eru ferðir með Herjólfi, kennsla, efni, matur og gisting.
- Kristófer H. Kjartansson í Hofstaðaskóla með hugmynd sína Regnshaldir(kápa)
- Ásdís Ólafsdóttir í Hofstaðaskóla með hugmynd sína Langur sópur
- Katrín Angela Jónsdóttir í Laugalækjarskóla með hugmynd sína Kúlukoddar
- Eyrún Hjálmarsdóttir og Valdís Una Guðmannsdóttir í Flúðaskóla með hugmynd sína SiliGos
- Salka Nóa Ármannsdóttir í Vesturbæjarskóla með hugmynd sína Hjálmalás
- Helena Huld Hafsteinsdóttir og Hekla Karlsdóttir Roth í Vesturbæjarskóla með hugmynd sína Gufusogari
- Vignir Gauti Guðjónsson og Björn Darri Ásmundsson í Brekkubæjarskóla með hugmynd sína Svefnvaki
- Trausti Helgi Atlason og Trausti Ingólfsson í Varmahlíðarskóla með hugmynd sína Rúlluendastimpill
- Jóakim Uni Arnaldsson í Vesturbæjarskóla með hugmynd sína Sturtuhandklæðaskápur
- Ásdís Rún Grímsdóttir og Ísold Assa Guðmundsdóttir í Kerhólsskóla með hugmynd sína Fjölnota hólfapoki
- Eftirfarandi fá viðurkenningarskjal fyrir að komast í úrslit Nýsköpunarkeppninnar ásamt gjafabréfi í Háskóla unga fólksins 2019
- Lydía Einarsdóttir og Þóra Emelía Ólafsdóttir í Varmahlíðarskóla með hugmynd sína Sauðfjárteljari
- Saga Líf Ágústdóttir og Ásdís Ósk Brynjarsdóttir í Grunnskólanum á Ísafirði með hugmynd sína Vasapeningar
- Guðjón Guðmundsson og Sölvi Páll Guðmundsson í Rimaskóla með hugmynd sína flugvéladekkjaskeið
- Ylfa Sól Þorsteinsdóttir í Foldaskóla með hugmynd sína Fjölskyldutími
- Kristján Nói Kristjánsson í Vesturbæjarskóla með hugmynd sína Hitamælispannan
- Freyja Gísladóttir og Telma Rut Þorsteinsdóttir í Grunnskóla Reyðarfjarðar með hugmynd sína Plastleysari
- Eftirfarandi fá viðurkenningarskjal fyrir að komast í úrslit Nýsköpunarkeppninnar ásamt gjafabréfi í IKEA:
- Karen Óttarsdóttir í Seljaskóla með hugmynd sína Snúskápur
- Brynja Bjarnadóttir í Sæmundarskóla með hugmynd sína Lyklaskál
- Elsa Kristín Arnaldardóttir í Hofstaðaskóla með hugmynd sína Næringarappið
- Ísabella Björk Gestsdóttir og Sunneva Þorvaldsdóttir í Hofstaðaskóla með hugmynd sína Snúruhulstur
- Jóhann Tyron De Jesus í Brúarskóla, Vesturhlíð með hugmynd sína lóðréttur snagi
- Sunneva Dís Freysdóttir og Lilja Petrea Líndal í Brekkubæjarskóla með hugmynd sína Lestrarhjálp
- Valborg Lilja Gunnarsdóttir og Ásthildur Una Jónsdóttir í Seljaskóla með hugmynd sína Lyklatafla
- Viðar Gauti Jónsson og Matthías Fossberg í Kerhólsskóla með hugmynd sína Kúku-minni
Vilji – Hvatningarverðlaun kennara
Í ár hljóta 2 kennarar viðurkenninguna, fyrir framúrskarandi störf til eflingar nýsköpunar-menntunar á Íslandi og hljóta báðir nafnbótina „Nýsköpunarkennari grunnskólanna árið 2018“ ásamt verðlaunum að fjárhæð 125.000 kr, í boði Samtaka Iðnaðarins: Sædís Arndal í Hofsstaðaskóla og Arna Björk H. Gunnarsdóttir í Vesturbæjarskóla