Hér getur þú sent okkur hugmyndina þína í gegn um netið eða prentað út umsókn og sent okkur í pósti.
Það eina sem þú þarft að gera er að senda þær upplýsingar sem beðið er um. Ef þú sendir umsókn inn rafrænt þarftu að setja mynd af hugmyndinni þinni í viðhengi. Viðhengið getur verið mynd sem þú teiknar og tekur mynd af eða teikning sem gerð er í myndvinnsluforriti.
Þú mátt senda eins margar hugmyndir inn og þú vilt. Þær mega bæði vera nýjar útfærslur að lausnum sem eru þegar til, eða alveg nýjar hugmyndir.
Frestur til að skila hugmyndum vegna skólaársins 2019–2020 rann út föstudaginn 8. maí 2020, kl. 16:00.
Dómnefnd kemur saman þriðjudaginn 21. apríl kl. 10–14. Mikilvægt er að þær hugmyndir sem sendar eru með pósti séu sendar tímanlega svo þær berist okkur fyrir mánudaginn 20. apríl. Ekki hika við að hafa samband ef þið sjáið fram á að lenda í vandræðum með þessa tímasetningu.
Allar hugmyndir eru velkomnar ?
Umsóknir í pósti skal senda á:
Nýsköpunarkeppni grunnskólanna
Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Árleyni 2–8, 112 Reykjavík