Lokahóf

Frábær dagur að baki. Afhending verðlauna fóru fram í lokahófi Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda í dag en keppnin var nú haldin í 21. sinn. Athöfnin fór fram í Sólinni, í Háskólanum í Reykjavík, sem er einn af bakhjörlum keppninnar. Átján þátttakendur fengu verðlaun fyrir hugmyndir sínar af þeim 53 þátttakendum sem tóku þátt í úrslitum. Í ár bárust 2906 hugmyndir frá 44 grunnskólum víða um land sem kenna á miðstigi.

Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson verndari keppninnar, afhenti verðlaunin og flutti hátíðarræðu. Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra flutti hvatningarræðu, afhenti viðurkenningarskjöl til þátttakenda og farandbikar til grunnskóla. Þá kynntu þátttakendur sjálfir hugmyndir sínar fyrir gestum.

Farandbikar til nýsköpunarskóla ársins í flokki minni og stærri skóla

Farandbikarinn í flokki stærri skóla fyrir hlutfallslega flestar hugmyndir í keppninni hlaut Hofsstaðaskóli í Garðabæ. Var þetta fimmta árið í röð sem Hofsstaðaskóli hlýtur bikarinn.

Farandbikarinn í flokki minni skóla fyrir hlutfallslega flestar hugmyndir í keppninni hlaut Brúarásskóli á Fljótdalshéraði annað árið í röð

Guðrúnarbikarinn

Anna Hulda Ólafsdóttir afhenti bikarinn til minningar um móður sína Guðrúnu Þórsdóttir.

Tristan Snær Björnsson og Reyn Alpha Magnúsar úr Laugarnesskóla voru með hugmynd sem heitir „Video School“ sem kynnir upphaf grunnskóla fyrir leikskólakrökkum.

Tæknibikar Pauls Jóhannssonar

Tæknibikar Pauls Jóhannssonar var afhentur í fyrsta sinn, Paul Jóhannsson er frumkvöðull NKG og stofnaði keppnina fyrir 21 ári. Hann Varði lungan af ævi sinni í eflingu nýsköpunarmenntar á Íslandi. Tæknibar Pauls Jóhannssonar var veittur til Atla Gauta Ákason, en hugmynd hans „Hangbekkur“ var tæknileg lausn á vandamálum siglingamanna sem vilja æfa jafnvægi á skútu án þess að vera staddur í opnu hafi.

Verðlaunahafar NKG2013

NafnFlokkurNafn á hugmyndSkóliSæti
Helena Ýr MarinósdóttirUppfinningTumanálHofsstaðaskóli1
Sylvía Sara ÁgústsdóttirUppfinningTumanálHofsstaðaskóli1
Guðbjörg Marín GuðmundsdóttirUppfinningRúllubreiðarinnHólabrekkuskóli2
Guðrún Helga DarradóttirUppfinningRúllubreiðarinnHólabrekkuskóli2
Friðþóra SigurjónsdóttirUppfinningSundlaugarljósHofsstaðaskóli3
Bjarkey Rúna JóhannsdóttirÚtlits- og formhönnunSæng í sængurveriHólabrekkuskóli1
Kristmundur Orri MagnússonÚtlits- og formhönnunSleipsokkurHofsstaðaskóli2
Leifur Skarphéðinn Snorri ÁrnasonÚtlits- og formhönnunSleipsokkurHofsstaðaskóli2
Ísabella HalldórsdóttirÚtlits- og formhönnunVöggukjóllHofsstaðaskóli3
Kristina Atanasova AtanasovaÚtlits- og formhönnunVöggukjóllHofsstaðaskóli3
Sandra María SævarsdóttirLandbúnaðurKindaleitariHofsstaðaskóli1
Kristrún María GunnarsdóttirLandbúnaðurSmjörstiftiHáaleitisskóli-Hvassaleiti2
Ragnheiður ÞorsteinsdóttirLandbúnaðurBændahjálpEgilsstaðaskóli3
Margrét María ÁgústsdóttirLandbúnaðurBændahjálpEgilsstaðaskóli3
Elva Dögg IngvarsdóttirLandbúnaðurBændahjálpEgilsstaðaskóli3
Almar AðalsteinssonTölvur- og tölvuleikirVikingar á ferð og flugiEgilsstaðaskóli1
Máney GuðmundsdóttirTölvur- og tölvuleikirOfnæmisvarnarkerfiHólabrekkuskóli2
Helga María MagnúsdóttirTölvur- og tölvuleikirGPS tæki bílastæðiHofsstaðaskóli3