2018

Yfir 1200 hugmyndir, frá 38 skólum víðs vegar af landinu, bárust að þessu sinni. Dómnefnd valdi 26 hugmyndir, sem 40 nemendur standa að baki,  í vinnusmiðjuna, þ.e. úrslitakeppni NKG 2018, sem fór fram í Háskólanum í Reykjavík, dagana 24. og 25. maí. 

Aðalvinningshafar NKG 2018 eru eftirfarandi

Fyrsta sæti

Guðjón Guðmundsson og Sölvi Páll Guðmundsson í Rimaskóla, með hugmynd sína flugvéladekkjaskeið, en það er vindskeið sem sett er á flugvéladekk, svo þau fara að snúast fyrir lendingu. Viðurkenninguna fá þeir fyrir nýsköpun, raunsæi og útfærslu hugmyndar ásamt dugnaði og eljusemi í vinnustofu. Verðlaun: Acer Swift 3 SF314 14” fartölva að verðmæti 120 þús, í boði ELKO

Annað sæti

Jóakim Uni Arnaldsson í Vesturbæjarskóla, með hugmynd sína Sturtuhandklæðaskápur, en það er lítill skápur til að geyma handklæði, síma o.fl. í sturtuklefunum sjálfum. Viðurkenninguna fær hann fyrir nýsköpun, raunsæi og útfærslu hugmyndar ásamt dugnaði og eljusemi í vinnustofu. Verðlaun: Samsung A8 farsími að verðmæti 70.000 kr. í boði ELKO

Þriðja sæti

Salka Nóa Ármannsdóttir í Vesturbæjarskóla,  með hugmynd sína Hjálmalás, en það Hjólreiðahjálmur sem hægt er að nota til að læsa reiðhjólinu. Viðurkenninguna fær hún fyrir nýsköpun, raunsæi og útfærslu hugmyndar ásamt dugnaði og eljusemi í vinnustofu. Verðlaun: Samsung J5 farsími að verðmæti 35.000 kr. í boði ELKO

Sigurvegarar í vinningsflokkum NKG eru eftirfarandi

Fjármálabikar Arion banka

Saga Líf Ágústdóttir og Ásdís Ósk Brynjarsdóttir í Grunnskólanum á Ísafirði sem hljóta „viðurkenningu fyrir bestu fjármálalausnina“ með hugmynd sína Vasapeningar. Verðlaun: Samsung J5 farsími í boði ELKO

Tæknibikar Pauls Jóhannssonar

Trausti Helgi Atlason og Trausti Ingólfsson í Varmahlíðarskóla í Skagafirði hljóta viðurkenningu fyrir framúrskarandi tæknilega útfærslu með hugmynd sína Rúlluendastimpill. Verðlaun: Samsung J5 farsími að verðmæti 35.000 kr. í boði ELKO

Samfélagsbikar NKG

Sunneva Dís Freysdóttir og Lilja Petrea Líndal í Brekkubæjarskóla hljóta viðurkenningu fyrir framúrskarandi samfélagslega nýsköpun með hugmynd sína Lestrarhjálp. Verðlaun: Samsung J5 farsími að verðmæti 35.000 kr. í boði ELKO

Forritunarbikar NKG

Ylfa Sól Þorsteinsdóttir í Foldaskóla, hlýtur viðurkenningu fyrir framúrskarandi nýsköpun þar sem forritunar er þörf með hugmynd sína Fjölskyldutími. Verðlaun: Samsung J5 farsími að verðmæti 35.000 kr. í boði ELKO

Hönnunarbikar NKG

Katrín Angela Jónsdóttir í Laugalækjarskóla hlýtur viðurkenningu fyrir framúrskarandi hönnun með hugmynd sína Kúlukoddar. Verðlaun: Samsung J5 farsími að verðmæti 35.000 kr. í boði ELKO

Örforritun Kóðans

Vignir Gauti Guðjónsson og Björn Darri Ásmundsson í Brekkubæjarskóla, sem hljóta viðurkenningu fyrir framúrskarandi tæknilega nýsköpun þar sem forritunar er þörf, með hugmynd sína Svefnvaki

Umhverfisverðlaun Einkaleyfisstofu

Freyja Gísladóttir  og Telma Rut Þorsteinsdóttir í Grunnskóla Reyðarfjarðar, sem hljóta  viðurkenningu fyrir framúrskarandi nýsköpun á sviði umhverfismála með hugmynd sína Plastleysari

Ræðubikar JCI

Katrín Angela Jónsdóttir í Laugalækjarskóla, hlýtur viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur á ræðunámskeiði JCI.

Eftirfarandi fá viðurkenningarskjal fyrir að komast í úrslit Nýsköpunarkeppninnar ásamt gjafabréfi í FAB LAB: verðmæti allt að 50.000 kr.

Um er að ræða tveggja daga ferð í Fab Lab smiðju Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands í Vestmannaeyjum.Innifalið eru ferðir með Herjólfi, kennsla, efni, matur og gisting.

  • Kristófer H. Kjartansson í Hofstaðaskóla með hugmynd sína Regnshaldir(kápa)
  • Ásdís Ólafsdóttir í Hofstaðaskóla með hugmynd sína Langur sópur
  • Katrín Angela Jónsdóttir í Laugalækjarskóla með hugmynd sína Kúlukoddar
  • Eyrún Hjálmarsdóttir og Valdís Una Guðmannsdóttir í Flúðaskóla  með hugmynd sína SiliGos
  • Salka Nóa Ármannsdóttir í Vesturbæjarskóla með hugmynd sína Hjálmalás
  • Helena Huld Hafsteinsdóttir og Hekla Karlsdóttir Roth í Vesturbæjarskóla með hugmynd sína Gufusogari
  • Vignir Gauti Guðjónsson og Björn Darri Ásmundsson í Brekkubæjarskóla með hugmynd sína Svefnvaki
  • Trausti Helgi Atlason og Trausti Ingólfsson í Varmahlíðarskóla með hugmynd sína Rúlluendastimpill
  • Jóakim Uni Arnaldsson í Vesturbæjarskóla með hugmynd sína Sturtuhandklæðaskápur
  • Ásdís Rún Grímsdóttir og Ísold Assa Guðmundsdóttir í Kerhólsskóla með hugmynd sína Fjölnota hólfapoki
  • Eftirfarandi fá viðurkenningarskjal fyrir að komast í úrslit Nýsköpunarkeppninnar ásamt gjafabréfi í Háskóla unga fólksins 2019
  • Lydía Einarsdóttir og Þóra Emelía Ólafsdóttir í Varmahlíðarskóla með hugmynd sína Sauðfjárteljari
  • Saga Líf Ágústdóttir og Ásdís Ósk Brynjarsdóttir í Grunnskólanum á Ísafirði með hugmynd sína Vasapeningar
  • Guðjón Guðmundsson og Sölvi Páll Guðmundsson í Rimaskóla með hugmynd sína flugvéladekkjaskeið
  • Ylfa Sól Þorsteinsdóttir í Foldaskóla með hugmynd sína Fjölskyldutími
  • Kristján Nói Kristjánsson í Vesturbæjarskóla með hugmynd sína Hitamælispannan
  • Freyja Gísladóttir og Telma Rut Þorsteinsdóttir í Grunnskóla Reyðarfjarðar með hugmynd sína Plastleysari
  • Eftirfarandi fá viðurkenningarskjal fyrir að komast í úrslit Nýsköpunarkeppninnar ásamt gjafabréfi í IKEA:
  • Karen Óttarsdóttir í Seljaskóla með hugmynd sína Snúskápur
  • Brynja Bjarnadóttir í Sæmundarskóla með hugmynd sína Lyklaskál
  • Elsa Kristín Arnaldardóttir í Hofstaðaskóla með hugmynd sína Næringarappið
  • Ísabella Björk Gestsdóttir og Sunneva Þorvaldsdóttir í Hofstaðaskóla með hugmynd sína Snúruhulstur
  • Jóhann Tyron De Jesus í Brúarskóla, Vesturhlíð með hugmynd sína lóðréttur snagi
  • Sunneva Dís Freysdóttir og Lilja Petrea Líndal í Brekkubæjarskóla með hugmynd sína Lestrarhjálp
  • Valborg Lilja Gunnarsdóttir og Ásthildur Una Jónsdóttir í Seljaskóla með hugmynd sína Lyklatafla
  • Viðar Gauti Jónsson og Matthías Fossberg í Kerhólsskóla með hugmynd sína Kúku-minni

Vilji – Hvatningarverðlaun kennara

Í ár hljóta 2 kennarar viðurkenninguna, fyrir framúrskarandi störf til eflingar nýsköpunar-menntunar á Íslandi og hljóta báðir nafnbótina „Nýsköpunarkennari grunnskólanna árið 2018“ ásamt verðlaunum að fjárhæð 125.000 kr, í boði Samtaka Iðnaðarins:  Sædís Arndal í Hofsstaðaskóla og Arna Björk H. Gunnarsdóttir í Vesturbæjarskóla