
NKG 2016 – nöfn vinningshafa
Eftirfarandi fá verðlaun fyrir 1. sætið
Verðlaun: Lenovo Yoga fartölva að verðmæti 140 þús. ásamt gjafabréfi í FAB LAB að verðmæti allt að 50.000 kr:
- Hekla Ylfa Einarsdóttir í 5. bekk Hofsstaðaskóla, – Baðkarspípari
- Hrafnhildur Haraldsdóttir í 6. bekk Árbæjarskóla og Hafsteinn Yngvi Kolbeinsson í 6. bekk Langholtsskóla, – Hitaskiltið
- Guðrún Erlendsdóttir og Mónika Andjani í 7. bekk Húsaskóli, – Hneppu handklæðið
Eftirfarandi fá verðlaun fyrir 2. sætið
Verðlaun: Samsung spjaldtölva að verðmæti 70 þús:
- Björn Þór Hrafnkelsson í 5. bekk Stóra Vogaskóla, – Gluggaopnari fyrir ketti – MurrinnX
- Sonja Ingimundardóttir í 6. bekk Hofsstaðaskóla, – Ofnæmiskynjari
- Áshildur Þóra Heimisdóttir í 7. bekk Sæmundarskóli, – Teljandi fótbolti
Eftirfarandi fá verðlaun fyrir 3. sætið
Verðlaun: Samsung snjallsími að verðmæti 50 þús:
- Ásdís Ólafsdóttir í 5. bekk Hofsstaðaskóli, – Morgunverðarskál með halla
- Óskar Aron Stefánsson og Indriði Ægir Þórarinsson í 6. bekk Varmahlíðarskóli, – Markaskráarappið
- Sindri Immanúel í 7. bekk Barnaskólinn á Eyrabakka og Stokkseyri, – Rafknúinn hurðarlokari
VILJI – Hvatningarverðlaun NKG 2016
Í ár hlýtur Álfheiður Ingólfsdóttir úr Sæmundarskóla, verðlaunin, „fyrir framúrskarandi framlag sitt til eflingar nýsköpunarmenntunar á Íslandi.“ og hlýtur því nafnbótina „ Nýsköpunarkennari grunnskólanna árið 2016“, ásamt verðlaunum að fjárhæð 250.000 kr.
Guðrúnarbikarinn
Guðrúnarbikarinn er veittur hugmyndasmið sem er talinn hafa skarað fram úr fyrir hugmyndaríki, dugnað, að vera fylginn sér, kurteis og samviskusamur.
Guðrúnarbikarinn er veittur í minningu Guðrúnar Þórsdóttir, sem var einn af frumkvöðlum Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda og innleiðingu nýsköpunarmenntar í grunnskólum landsins.
Björn Þór Hrafnkelsson úr Stóru-Vogaskóla hlýtur Guðrúnarbikarinn í ár, fyrir hugmynd sína Gluggaopnari fyrir ketti – MurrinnX.
Tæknibikars Pauls Jóhannssonar
Hrafnhildur Haraldsdóttir og Hafsteinn Yngvi Kolbeinsson úr Árbæjarskóla sem hljóta viðurkenningu og Tæknibikarinn í ár fyrir framúrskarandi sköpunargáfu og eljusemi í vinnusmiðju NKG, með hugmynd sína Hitaskiltið
Eftirfarandi fá viðurkenningarskjal fyrir að komast í úrslit Nýsköpunarkeppninnar ásamt gjafabréfi í Háskóla unga fólksins, sumarið 2017
- Magnús Máni Kjærnested og María Sif Óskarsdóttir. 7. bekkur, Ingunnarskóli, – Eineltishúfan
- Agnes Ómarsdóttir. 6. bekkur Hofsstaðaskóli, – Hitamottan
- Kristín Huld Stefánsdóttir og Þorbjörg Guðrún Kristófersdóttir. 6. bekkur, Þjórsárskóli, – Hnífastandur
- Katrín Anna Halldórsdóttir og Birgitta Einarsdóttir. 7. bekkur, Egilsstaðaskóli, – Iceland ABC
- Þórey Kjartansdóttir og Birta Birgisdóttir . 7. bekkur, Laugalækjarskóli, – Íslandsappið
- Ástmar Helgi Kristinsson og Sigurjón Dagur Júlíusson. 6. bekkur, Grunnskólinn á Ísafirði, – Úti að leika app
Eftirfarandi fá viðurkenningarskjal fyrir að komast í úrslit Nýsköpunarkeppninnar ásamt gjafabréfi í IKEA að verðmæti 15.000 kr.
- Heiðdís Jóna Grétarsdóttir. 7. bekkur, Egilsstaðaskóli, – Barnapíuappið
- Brynja Dröfn Ásgeirsdóttir og Birgitta Dís Maríudóttir. 5. bekkur, Seljaskóli, – Lenging á lit/blýant
- Sirui Xang. 5. bekkur, Flúðaskóli, – Pennayddari
- Elísabet Guðný Guðnadóttir og Andrea Ýr Geirsdóttir Foelsche. 7. bekkur, Hvaleyrarskóli, – Segulpúslið
- Lilja Diljá Ómarsdóttir og Flóra Rún Haraldsdóttir. 5. bekkur, Varmahlíðarskóli, –Takka- og inni íþróttaskór
- Óskar Aron Stefánsson og Indriði Ægir Þórarinsson. 6. bekkur, Varmahlíðarskóli, – Tappahnífur
Eftirfarandi fá viðurkenningarskjal fyrir að komast í úrslit Nýsköpunarkeppninnar ásamt gjafabréfi í FAB LAB, verðmæti allt að 50.000 kr.
- Eiður Kristinsson. 7. bekkur, Egilsstaðaskóli, – Foreldraappið
- Sveinn Bernard Blomsterberg og Ísólfur Ísólfsson. 5. bekkur, Snælandsskóli, – Hraðavaktarinn
- Hera Björk Arnarsdóttir og Lára Guðný Þorsteinsdóttir. 5. bekkur, Hofsstaðaskóli, – Klósettopnari
- Birgir Valur Thorsteinson og Anna María Magnúsdóttir. 5. bekkur, Flúðaskóli. Læstur snagi
- Alicja Krupinska. 6. bekkur, Grunnskóli Reyðarfjarðar, – Tónhárband
- Andrea Ýr Geirsdóttir Foelsche. 7. bekkur, Hvaleyrarskóli, – Ídýfuskál