Þá hefur verið valið í vinnustofu NKG, þ.e. úrslitakeppnina en dómnefnd kom saman í síðustu viku.  Dómnefnd NKG 2018 skipa:

  • Rúnar Magnússon, markaðssérfræðingur hjá Arion banka
  • Linda Björk Helgadóttir Sérfræðingur hjá Einkaleyfisstofunni
  • Hildi Arnadóttur, verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands
  • Helena Jóhannsdóttir, innanhúshönnuður- og arkitekt hjá IKEA
  • Hannes Ottósson verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
  • Eyjólfur Eyjólfsson, verkefnisstjóri NKG og hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands

Var mikið verk og vandasamt var að velja 26 hugmyndir, úr þessum flotta hópi hugmyndaríkra grunnskólabarna sem komu fram með ótal frábærar hugmyndir, sem tengjast öllu milli himins og jarðar.

En, – eins og alltaf, þá komast því miður ekki allir að og því þurfti að velja hugmyndir í úrslitin, – hér kemur listi yfir þátttakendur í vinnustofunni. Við óskum þeim innilega til hamingju með þennan stóra áfanga:

HugmyndNafn nemendaNafn hópfélagaKennariSkóliBekkur
FerðasnyrtibrúsiSunneva Dís HalldórsdóttirJóna Karítas GuðmundsdóttirHólmfríður GuðmundsdóttirÁrskóli5
Lýsing:Sjámpóbrúsi með hólfum fyrir smáhluti
Fjölnota hólfapokiÁsdís Rún JónsdóttirÍsold Assa GuðmundsdóttirAnna K. ÞórarinsdóttirKerhólsskóli5
Lýsing:Innkaupa poki með hólfum
FjölskyldutímiYlfa Sól ÞorsteinsdóttirLóa Kristín GuðmundsdóttirFoldaskóli7
Lýsing:Forrit sem heldur utan um sameiginlegan tíma
fjölskyldunnar
FlugvéladekkjaskeiðGuðjón GuðmundssonSölvi Páll GuðmundssonHaraldur HrafnssonRimaskóli7
Lýsing:Vindskeið sem snýr flugvéladekkjum fyrir lendingu
Gardínur 2.0Baldur FinnssonSædís S. ArndalHofstaðaskóli6
Lýsing:Gardínur með birtuskynjara
GufusogariHelena Huld HafsteinsdóttirHekla Karlsdóttir RothArna BjörkVesturbæjarskóli6
Lýsing:Lítið handhægt tæki sem dregur í sig raka
HitamælispannanKristján Nói KristjánssonArna BjörkVesturbæjarskóli6
Lýsing:Hitamælir sem sýnir hvað ofnpanna er heit
HjálmalásSalka Nóa ÁrmannsdóttirArna BjörkVesturbæjarskóli6
Lýsing:Hjólreiðahjálmur sem er einnig hjólalás
Kúku-minniViðar Gauti JónssonMatthías FossbergAnna K. ÞórarinsdóttirKerhólsskóli5
Lýsing:Forritanleg klassísk „Kúkú klukka“. Hjálpar fólki
með minnisglöp
KúlukoddarKatrín Angela JónsdóttirMagnús V. GuðlaugssonLaugalækjarskóli7
Lýsing:Ferðakoddi úr samtengjanlegum kúlum
Langur sópurÁsdís ÓlafsdóttirSædís S. ArndalHofstaðaskóli7
Lýsing:Stækkanlegur sópur/kústur
LestrarhjálpSunneva Dís FreysdóttirLilja PetreaGuðrún HjörleifsdóttiBrekkubæjarskóli5
Lýsing:Borðspil sem hjálpar börnum að læra að lesa
lóðréttur snagiJóhann Tyron De JesusAndri Snær ÞorvaldssonBrúarskóli, Vesturhlíð5
Lýsing:Fatasnagi sem nýtir plássið betur
LyklaskálBrynja BjarnadóttirElín ÓskSæmundarskóli6
Lýsing:Gefur frá sér hljóð ef lyklar eru við það að gleymast inni
LyklataflaValborg Lilja GunnarsdóttirÁsthildur Una JónsdóttirVarði og ÞórirSeljaskóli5
Lýsing:Segultafla fyrir lykla
NæringarappiðElsa Kristín ArnaldardóttirSædís S. ArndalHofstaðaskóli5
Lýsing:Símaforrit sem sýnir hvort vara sé holl eða ekki
PlastleysariFreyja GísladóttirTelma Rut ÞorsteinsdóttirSvava MagnúsdóttirGrunnskóli Reyðarfjarðar6
Lýsing:Tæki sem safnar saman plsti úr sjó
Regnshaldir(kápa)Kristófer H. KjartanssonSædís S. ArndalHofstaðaskóli7
Lýsing:Regnkápa sem safnar vatni
RúlluendastimpillTrausti Helgi AtlasonTrausti IngólfssonÓlafur Atli SindrasonVarmahlíðarskóli6
Lýsing:Stimplar dagestningu á heyrúlluplast
SauðfjárteljariLydía EinarsdóttirÞóra Emelía ÓlafsdóttirUnnur Erla SveinbjörnsdóttirVarmahlíðarskóli7
Lýsing:Símaforrit sem telur kindur
SiliGosEyrún HjálmarsdóttirValdís Una GuðmannsdóttirKristín Erla IngimarsdóttirFlúðaskóli7
Lýsing:Margnota áfyllingarbrúsi fyrir gosdrykki úr verslunum
SnúruhulsturÍsabella Björk GestsdóttirSunneva ÞorvaldsdóttirSædís S. ArndalHofstaðaskóli5
Lýsing:Vörn gegn því að dýr nagi sundur snúrur
SnúskápurKaren ÓttarsóttirVarði og ÞórirSeljaskóli6
Lýsing:Snúningshilla fyrir ísskápa
SturtuhandklæðaskápurJóakim Uni ArnaldssonArna BjörkVesturbæjarskóli5
Lýsing:Lítill skápur til að geyma handklæði í sturtuklefum
SvefnvakiVignir Gauti GuðjónssonBjörn Darri ÁsmundssonKristbjörg SveinsdóttirBrekkubæjarskóli6
Lýsing:Skynjari sem pípir þegar ökumaður er að sofna undir stýri
VasapeningarSaga Líf ÁgústdóttirÁsdís Ósk BrynjarsdóttirJóhanna Ása EinarsdóttirGrunnskólinn á Ísafirði7
Lýsing:Forrit sem tekur saman
vasapening fyrir verkefnavinnu

Tikynning hefur verið send út til forráðamanna og umsjónarkennara nemendanna. Í þó nokkrum tilfellum, vantaði þó netföng á umsóknunum, svo þó nokkrir hafa líklega ekki fengið tilkynninguna, – endilega ekki hika við að hafa samband ef þið sjáið barn ykkar hér á listanum eða einhverjar spurningar vakna.

Vinnustofan sjálf, verður haldin í Háskóla Reykjavíkur, dagana 24. og 25. maí næstkomandi. Úrslitin og sýning á verkum barnana, verður svo á laugardeginum, 26. maí. Lilja Alfreðsdóttir, Mennta- og menningarmálaráðherra flytur ávarp og afhendir aðalverðlaun NKG 2018

Dagskrá vinnustofu NKG 2018