Þá hefur verið valið í vinnustofu NKG, þ.e. úrslitakeppnina en dómnefnd kom saman í síðustu viku. Hana skipa:

  • Ásdís Kristmundsdóttir, sviðsstjóri hjá Einkaleyfastofu
  • Birna Rún Gísladóttir, sérfræðingur á þróunar- og markaðssviði Arion banka
  • Sirrý Sæmundsdóttir, hópstjóri innanhússhönnuða hjá IKEA
  • Hildur Sif Arnardóttir, upplýsingafulltrúi hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands
  • Eyjólfur Brynjar Eyjólfsson, verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands

Yfir 1100 hugmyndir, frá 33 skólum víðsvegar af landinu, bárust að þessu sinni .

Var mikið verk og vandasamt var að velja 25 hugmyndir, úr þessum flotta hópi hugmyndaríkra grunnskólabarna sem komu fram með ótal frábærar hugmyndir, sem tengjast öllu milli himins og jarðar. Greinilegt er að það eru virkilega flott og skapandi fólk sem mun erfa landið.

En, – því miður þá komast ekki allir að og því þurfti að velja hugmyndir í úrslitin, – hér kemur listi yfir þátttakendur í vinnustofunni. Við óskum þeim innilega til hamingju með þennan stóra áfanga:

HugmyndLýsing á hugmyndNafn nemendaNafn hópfélagaSkóliBekkur
Afgangur af matMiðstöð sem tekur við og
útdeilir mat til fátækra
Bergvin Logi Ingason Hofstaðaskóli6
ApplockerForrit sem foreldrar nota til að
stýra tímanum sem krakkar eru í tölvuleikjum(farsímar, spjaldtölvur)
Anna Lilja LárusdóttirBrekkubæjarskóli7
BarnabjargariHandfangið á barnavagninum
skynjar hvort hendur séu á honum. Læsir dekkjunum ef svo er ekki.
Þóra Emelía ÓlafsdóttirLilja Diljá ÓmarsdóttirVarmahlíðarskóli7
Betri einkunnirForrit sem hjálpar þér við
heimalærdóminn.
Magnhildur Marín ErlingsdóttirSilja Hrönn SverrisdóttirEgilsstaðaskóli7
DiskapörDiskur með hólfi sem geymir
hnífapörin
Anna Katrín VíðisdóttirAnna María Magnúsdóttir B.Flúðaskóli7
Einföld MarkatöngMarkatöng sem hægt er að festa
fleiri gerðir af mörkum á. Þarf því barta að klípa í eyrað einu sinni, í stað
2-4 sinnum.
Indriði Ægir ÞórarinssonÓskar Aron StefánssonVarmahlíðarskóli7
FerðaburstiHárbursti með hólf fyrir
snyrtivörur,  hárteygjur osfrv.
Una Karen Guðmundsdóttir Árskóli5
HandarvasaljósLítið (vasa)ljós, sem fest er á
vettlinga
Sindri Snær ÆgissonÁrskóli5
Hitaskynjari fyrir kranaLítill hitamælir/skynjari sem
festur er á kranann.
Hjálmar Þór Helgason Brúarskóli – Vesturhlíð6
Hitchhiker guide to IcelandForrit sem hjálpar fólki við að
fá far hjá öðrum eða boðið öðrum far
Kristín Hanna GuðmundsdóttirDavíð Fannar GuðmundssonVallaskóli6
Hljóð ólEf maður tínir hundinum sínum,
getur maður kveikt á hljóði(frá farsíma) sem hundirnn þekkir sem merki til að
koma til þín.
Viktoría Ír ArnarsdóttirHeiba Yanet EchegarayRimaskóli7
HlutverkaappForrit sem sýnir
hlutverkaskiptingu fjölskyldumeðlima.
Eva Bjarkey ÞorsteinsdóttirHofstaðaskóli7
HundasjampógreiðaHundabursti með innbyggðu hólfi
fyrir sjampó.
Emilía Stefanía Erlendsdóttir Seljaskóli5
KlemmusnagiSnagi með teygju á, sem
„lokar“ fötin á snaganum, svo þau detta ekki niður
Arna Sól OrradóttirSeljaskóli5
KútasundbolurSundbolur með innsaumuðum kút,
sem hægt er að blása upp.
Emma Sól Rögnvaldsdóttir Seljaskóli5
LásahjólagrindinHjólgrind með innbyggði læsingu.
Grindin lokast þegar hjól er sett inn í hana.
Alexander ArnarssonSæmundarskóli6
LyklaklemmaKlemma/lykklakippa sem stækkar
átakssvæðið fyrir lykilinn(auðveldar börnum að opna dyrnar) 
Óskar Aron StefánssonIndriði Ægir ÞórarinssonVarmahlíðarskóli5
MorgunmatarskálinTvískipt skál/diskur. Einn
helmingur fyrir mjólk, hinn fyrir morgunkornið.
Aron Kristian JónassonSjálandsskóli5
SkartgripamappanBókarmappa til að geyma
skartgripina
Fríða Rún EiríksdóttirÞórkatla LoftsdóttirÞjórsárskóli5
SögubangsiBangsi sem hægt er að setja
upptökutæki(snjallsíma) inn í. Hægt að „spila“ sögur osfrv.
Dísella EinarsdóttirSara Rún SævarsdóttirÁrskóli5
TöfluþrífariTöfluþrífari, með innbyggðu
vatnspreyi
Vaka Líf KristinsdóttirBrynja Dröfn ÁsgeirsdóttirSeljaskóli7
ÚtifataappiðForrit sem segir þér í hvernig
föt krakkar eiga að fara í, eftir veðri
Dagný Erla GunnarsdóttirEgilsstaðaskóli7
VatnshreinsistöðTveir tankar, sem nýta
sólarljósið til að hreinsa vatn.
Viktor Noesgaard Ólafsson Seljaskóli7
VettlingaþurrkugrindGrind, með mörgum krókum, sem
hengd er á ofna. Mikið auka pláss fyrir vettlinga osfrv.
Ásdís EinarsdóttirBaldvin EinarssonÖxarfjarðarskóli7
VindurVindknúið hleðslutæki fyrir
snjallsíma
Ylfa Sól Þorsteinsdóttir Foldaskóli6

Boðskort og dagskrá vinnustofu hefur verið sent út til forráðamanna og umsjónarkennara nemendanna. Í þó nokkrum tilfellum, vantaði þó netföng á umsóknunum, svo þó nokkrir hafa líklega ekki fengið boðskort, – endilega ekki hika við að hafa samband ef þið sjáið barn ykkar hér á listanum eða einhverjar spurningar vakna.

Vinnustofan sjálf, verður haldin í Háskóla Reykjavíkur, dagana 18. og 19. maí næstkomandi. Undanfarin ár hefir lokahófið sjálft verið haldið á sunnudeginum á eftir, en unnið er nú að því, að reyna að halda það strax á laugardeginum. Er það gert til að þau börn, sem koma utan af landi, þurfi ekki útvega sér gistingu, lengur en þörf er á, í bænum. Nánari dagskrá vinnustofunnar, kemur upp á allra næstu dögum.