VILJI – hvatningarverðlaun NKG
Á hverju ári hlýtur kennari eða kennarateymi nafnbótina Nýsköpunarkennari/-ar grunnskólanna árið 20xx ásamt verðlaunum að fjárhæð 250.000 kr.
VILJI – Hvatningarverðlaun NKG er í boði Samtaka iðnaðarins (SI) en þau leggja áherslu á menntamál til að stuðla að bættu aðgengi fyrirtækja að hæfum starfskrafti. Við hjá NKG erum stolt af því að hafa svo sterka bakhjarla. Við teljum bætt tengsl og aðkomu fyrirtækja að keppninni vera mikilvægan þátt í uppbyggingu NKG og nýsköpunarmenntar á Íslandi. Hlusta þarf á atvinnulífið og hvernig það telur að haga skuli menntun og áherslum til að undirbúa nemendur fyrir framtíðarstörf. Við þökkum SI kærlega fyrir þennan frábæra stuðning.
Tilgangur VILJA
- Hvetja kennara til dáða í nýsköpunarkennslu með viðurkenningu á framlagi þeirra.
- Draga fram og deila aðferðum og hugmyndum sem efla sköpunargáfu nemenda í ferlinu frá hugmynd til framkvæmdar og hvetja til þátttöku í NKG.
- Auka gæði nýsköpunarkennslu.
- Efla vitund um nýsköpunarmennt í grunnskólum landsins.
Sköpun er einn af grunnþáttum í menntun íslenskra skólabarna frá og með aðalnámskrá 2011.
Viðmið VILJA verða meðal annars gæði og fjölbreytileiki við innleiðingu á nýsköpunarmennt, nýsköpun í skipulagi og hönnun, þátttaka í NKG og tenging við nærumhverfi. Þetta eru dæmi um atriði sem tekin verða til hliðsjónar við val á verðlaunahafa hvers árs.
Við hvetjum kennara til að sækja um hér að neðan. Umsóknarfrestur rennur út sunnudaginn 26. apríl 2020 kl. 23:59.
Þeir bekkjar- og verkgreinakennarar sem kenna nýsköpunarmennt á miðstigi grunnskóla (5., 6. og 7. bekkur) eru sérstaklega hvattir til að taka þátt. Það er til mikils að vinna, bæði viðurkenningar á starfi sem og peningaverðlaun að fjárhæð sem nemur allt að 250.000 krónum (upphæðinni er hægt að skipta upp á milli fleiri en eins kennara) og tækifæri til að láta gott af sér leiða í þágu nýsköpunarmenntar á Íslandi.